Herdís L. Storggard, hjúkrunarfræðingur, varar foreldra við notkun á mjög gömlum barnavögnum á Facebook síðu verkefnisins Árvekni - Slysavarnir barna. Þar greinir hún frá nýlegu og alvarlegu slysi sem varð þegar handfang brotnaði af slíkum vagni.
„Nýlega varð alvarlegt slys þegar handfang barnavagns brotnað af þegar verið var að fara með hann niður tröppur. Um var að ræða 20 ára gamlan vagn sem notaður hafði verið mikið fyrir útisvefn. Barnavarnar eru ekki ætlaðir sem svefnaðstaða fyrir börn heldur eiga ungbörn eða börn undir 1 árs aldri alltaf að sofa í öruggu ungbarnarúmi eða vöggu sem stendt ströngustu kröfur um öryggi vöru,“ skrifar Herdís.
Hún segir að við nánari skoðun á vagninum hafi komið í ljós að handfangið hafi verið ryðgað í sundur. Þetta hafi hins vegar ekki verið sýnilegt að utanverðu, því skemmdirnar voru inni í handfangs rörinu.
„Barnavagnar eru búnaður sem er framleiddur til að flytja börn á milli staða. Þessar upplýsingar fylgja með nýjum vögnum og að þeir skulu ávalt notaðir undir eftirliti fullorðinna. Þegar að barn er lagt út í vagn til að sofa telst það ekki vera undir eftirliti þó notuð séu hlustunartæki.“
Herdís bendir á að kröfur um framleiðslu á barnavögnum breytist reglulega og því ekki víst að búnaður sem kominn sé til ára sinna sé jafn öruggur.
„Í þessu tiltekna slysi kemur í ljós að búið er að gera auknar kröfur um styrk á handfangið þannig að að þetta á ekki að geta gerst í nýjum vögnum. Það að hann hafði staðið mikið úti varð til þess að hann ryðgaði svona illa sem var ástæðan fyrir slysinu.“