Vara við nýjum og hættulegum leik barna

Í hópnum Brask og brall (allt leyfilegt) á Facebook er varað við nýjum og mögulega hættum leik ungra barna og ungmenna. Þar segir kona frá því að hafa orðið vitni að því í Hagkaup í Skeifunni að tveir strákar um tíu ára aldur hafi spurt ókunnuga manneskju hvort að hún gæti skutlað þeim heim.

Að sögn konunnar snýst leikur barnanna um að mana hvort annað í að spyrja ókunnugt fólk um far og ef þau segja já að fara með þeim. Ef fólkið sem spurt er segir nei þá segja þau að ef þau fái ekki far lendi þau í veseni í skólanum og reyni þannig að þrýsta á að fá far.

„Vildi bara segja frá því hér því þetta er bara stórhættulegt,“ segir konan og biðlar til foreldra að ræða þetta við börn sín.

Fjölmargir hafa skrifað undir færsluna og lýst furðu á þessum leik auk þess sem fjöldi hefur deilt færslunni. Einhverjir segja þennan leik koma frá samfélagsmiðlum og að börnin taki upp og deili þar.

Skjáskot/Facebook

Fleiri fréttir