Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarson er aldeilis ekki kátur piltur í dag en hann vaknaði með tyggjóklessu í hárinu. Ekki bara venjulega húbba búbba tyggjóklessu, heldur nikótíntyggjóklessu.
„Kannast lesendur við það að hafa óvart sofnað með nikótíntyggjó uppí sér bara til að vakna með hárið í einni flókabendu og í henni miðri er tyggjóklessa sem heldur öllu saman,“ byrjar Jakob Bjarnar í færslu sem minnir á auglýsingu fyrir húsmæðraráð á sjöunda áratugnum.
Hann biður vini sína á Facebook um ráð önnur en að klippa lubbann og ganga með húfu þar til rakarinn á horninu opnar.
Hringbraut ákvað að taka saman nokkur góð ráð í tilefni af tyggjóvandræðum blaðamannsins.
Hnetusmjör
Gamalt og gott ráð sem virkar alltaf: Gott er að nota tannbursta til að smyrja hnetusmjöri yfir tyggjóið og hárið í kring. Svo á að bíða í okkrar mínútur á meðan olían í hnetusmjörinu losar tyggjóið.
Kristjana Guðbrandsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Helgarblaðs Fréttablaðsins kemur einnig með gott ráð: Að nota kókosolíu. Líkt og hnetusmjörið gerir það tyggjóið minna klístrað.
Klaki
Hægt er að nudda klaka á tyggjóið svo það harðni. Hægt er að setja klaka í lítinn poka og festa utan um lokkinn með teygju í allt að 20 mínútur. Til að kæla tyggjóið meira er hægt að spreyja saltvatni á lokkinn áður. Eftir að tyggjóið harðnar er auðveldara að ná því úr.
Edik
Ótrúlegt en satt þá virkar edik vel á tyggjóklessu í hári. Edik er mild sýra sem leysir upp gerviefnin í tyggjói.
Best er að rennbleyta hárið og tyggjóið með ediki, bíða í nokkrar mínútur og greiða svo varlega tyggjóið úr hárinu.