Sigga Ózk og Langi Seli og Skuggarnir komust áfram í úrslitakvöld Söngvakeppninar 2023 eftir glæsilega keppni.
Sigga söng lagið Gleyma þér og dansa, á meðan Langi Seli og Skuggarnir sungu lagið Allt er Ok.
Í lokin var einnig tilkynnt að eitt lag enn færi inn í úrslitin. Hljómsveitin Celebs tryggði sér sætið, en lagið þeirra var aðeins tveimur atkvæðum frá því að komast í úrslitin eftir fyrra undanúrslitakvöldið.
Keppnin fór fram í Söngvakeppnishöllinni í Gufunesi og var mikið stuð í hjá áhorfendum.
Bragi og Diljá komust áfram í fyrri undanúrslitunum um síðustu helgi með lögunum Stundum snýst heimurinn gegn þér og Lifandi inni í mér þar sem heimurinn snerist, þvert á söng Braga, með honum og hvergi fór milli mála að Diljá var sprellifandi inni í sér. Fyrir og eftir keppni.