Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar segir að það megi draga mikinn lærdóm af því sem hefur gerst í kjarabaráttunni milli Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Að hennar sögn náðu verkföll félagsfólk Eflingar að skila árangri, þrátt fyrir einbeittan vilja valdstéttarinnar að svo yrði ekki.
„Þær umframhækkanir sem að fram náðust í samanburði við SGS-samninginn koma til þeirra sem að lögðu niður störf. Fyrir okkur sem að trúum á rétt vinnuaflsins til að berjast fyrir efnahagslegu réttlæti með sínum gömlu og góðu vopnum er ánægjulegt að sjá það gerast,“ sagði Sólveig í færslu á Facebook.
Þá heldur Sólveig því fram að láglaunafólk á höfuðborgarsvæðinu eigi ekki einn einasta vin í hópi ráðherra Íslands. Hún segir að enginn ráðherra hafi sent Eflingu þau skilaboð að þau væru ómissandi fólk í verðmætaframleiðslu landsins og að þau ættu heimtingu að á málflutning þeirra væri hlustað og kröfum mætt.
„Þessi lærdómur mun ekki gleymast í bráð; hann gerir okkur svo að segja fullnuma í skilningi á hnignum stjórnmálanna og undirgefni stjórnmálastéttarinnar gagnvart hagsmunum auðvaldsins,“ sagði Sólveig.
„Einnig var það mikið lærdómsferli að sjá þá markvissu og einbeittu tilraun sem sett var af stað til að svipta Eflingu, langstærsta félag verka og láglaunafólks á landinu, sínum sjálfstæða og lögvarða samningsrétt. Í þeirri skammarlegu tilraun lögðust á árarnar með SA aðilar sem að við hefðum aldrei að óreyndu trúað að væru svo yfirgengilega óprúttnir. Var það auðvitað ekkert annað en ömurlega sorglegt að þurfa að horfast í augu við þá heiftúðugu skemmdarverkastarfsemi gagnvart hagsmunum Eflingar. Efling hefur nú lært að velja sér vini af töluvert meiri kostgæfni en áður,“ sagði Sólveig.
Að lokum þakkaði hún öllum þeim sem sýndu Eflingu stuðning og að slagurinn hefði verið erfiðari án hans.
„Ég vona að þið haldið áfram að fylgjast með og styðja baráttu Eflingar-fólks fyrir mannsæmandi launum og góðu lífi fyrir verka og láglaunafólk og fjölskyldur þeirra. Það veitir sannarlega ekki af og eitt er alveg víst: Baráttan er rétt að byrja!“