Maður lést í umferðarslysi á níunda tímanum í gærkvöldi er rafhlaupahjól og hópferðabifreið lentu saman á horni Barónsstígs og Grettisgötu. Hann var á þrítugsaldri.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu, en í henni segir að maðurinn sem hafi látið lífið hafi verið rafhlaupahjólinu. Farþegum hópferðabifreiðarinnar var boðið upp á áfallahjálp hjá Rauða krossinum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar tildrög slyssins ásamt Rannsóknarnefnd samgönguslysa.Þá segist lögregla ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.