Ungliðahreyfingar vinstriflokka stinga saman nefjum: „Hvenær er reunion?“

Svo virðist sem ungir vinstri menn og jafnaðarmenn séu farnir að stinga nefjum saman ef marka má samskipti þeirra á Twitter.

„Hvenær er reunion?“ spurðu Ungir vinstri grænir á Twitter og birtu mynd af Þingvallastjórninni, annarri ríkisstjórn Geirs H. Haarde frá 2007 til 1. febrúar 2009 en í henni sátu ráðherrar frá Sjálfstæðisflokki og Samfylkingunni. Líkt og frægt er orðið baðst Geir H. Haarde lausnar fyrir ríkisstjórnina í janúar 2009 vegna erfiðleika í samstarfi flokkanna í kjölfar hruns íslenska bankakerfisins.

Ungir vinstri menn tögguðu Unga jafnaðarmenn og Unga Sjálfstæðismenn í færslunni og voru jafnaðarmenn fljótir að svara:

„Góðan dag UVG, gaman að sjá ykkur hér! Hvað sem líður einhverju stjórnarsamstarfi fyrir 14 árum þá höfum við nú sagt skýrt við kjósendur að við ætlum ekki að mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Það hefur ekkert breyst hjá okkur. Njótið dagsins.“

Jafnaðarmenn vilja ekki í stjórn með Sjöllum.

Svaraði þá UVG með mynd frá ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna með Jóhönnu Sigurðardóttur í farabroddi og skrifaði: „Takk! Okkur í UVG líkar þessi stjórn talsvert betur - og vonumst við eftir álíka stjórn eftir að talið hefur verið úr kjörkössum!“

Fleiri fréttir