Ungir menn geltu á Axel og Jóhann á brúðkaupsafmælinu þeirra: „Pælingin að afmanneskjuvæða samkynhneigða“

Tón­skáldið Axel Ingi Árna­son greindi frá því á Face­book að þrír ungir menn hafi gelt á hann og eigin­mann hans, Jóhann Frímann Rúnarsson þegar þeir voru að fagna brúðkaupsafmælinu sínu. Hann segir þetta geta haft alvarlegar afleiðingar og kallar eftir aukinni fræðslu. Fréttablaðið greindi frá.

„Ég og maðurinn minn erum að fagna fjögurra ára brúð­kaups­af­mæli, fórum út að borða á Matar­­kjallaranum og svo á Kiki og hittum vini okkar. Við á­­kveðum að fara snemma heim vegna þess að við vorum með barna­­pössun,“ segir Axel, en því næst fóru þeir í leigu­bíla­röðina.

„Á meðan við erum að fara inn í leigu­bíl þá koma þrír strákar á raf­­­magns­­hlaupa­hjólum að okkur. Einn þeirra geltir svona ag­gresí­vt að okkur og þeir hlæja allir ægi­­lega og vinur hans segir „það á að gelta á þessi hel­víti“,“ segir Axel.

Hann segir að hann og maðurinn hafi þurft smá stund til að átta sig á hvað hafði gerst. „Þeir bruna svo í burtu strax áður en við náum að átta okkur á þessu, þá öskrar maðurinn minn á þá.“

Axel segir að hann hafi heyrt sögur af ungu fólki sem geltir á sam­kyn­hneigt fólk.

„Við erum búnir að heyra af þessu trendi, þetta hefur því miður komið fyrir vini okkar. Þegar þetta gerðist þá tók það okkur nokkrar sekúndur að átta okkur al­menni­lega hvað hafði gerst, voru þeir í al­vörunni að gera þetta? Var þetta að koma fyrir okkur núna?“

„Þegar við komum heim þá settumst við niður og ræddum þetta, hvernig okkur leið og okkar til­finningar. Þetta var mjög ó­þægi­legt, en við erum alveg allt í lagi. Maður er samt hræddur um þeim sem eru á verri stað í lífinu og ég tala nú ekki um þá sem eru hin­seginn og kannski trans eða non binary eða ein­hvern sem eru kannski meira að ströggla með sitt sjálf og sitt ein­kenni þegar þau eru af­manneskju­vædd svona.

Hann segir að þetta geti haft al­var­legar af­leiðingar og minnir á skotárásina í Osló. „Pælingin með þessu er að af­manneskju­væða sam­kyn­hneigða og láta líta út eins og það sé skepnur. Það er nokkurn veginn verið að segja þið eruð ó­geðs­leg. Þetta getur haft svo al­var­legar af­leiðingar fyrir aðra, það er í raun það sem okkur finnst sárast.“

Viðtalið í heild sinni er hægt að lesa hér.

Mynd/skjáskot

Fleiri fréttir