Undra sig á þjálfara með grímu: „Er þetta án gríns að gerast í Kópavogi núna?“

Hjör­var Haf­liða­son, spark­s­pekingur deildi ný­verið á Twitter færslu þar sem hann undrar sig á að þjálfari í leik Breiða­bliks og Kefla­víkur sé með grímu.

Grímu­skylda hefur verið af­numin, en það eru enn þá sumir sem nota hana sem per­sónu­lega vörn gegn smitum og sjúk­dómum.

„Er þetta án gríns að gerast í Kópa­vogi núna?“ segir Hjör­var á Twitter og fær hann mörg svör við færsluna.

Ólafur A. Páls­son segir: Hversu glataðir eruð þið að gera grín að því að maðurinn sé með grímu? Hvert er vanda­málið? Rosa flottir kalla­kallar! Allir niður í kjallara? Really? Hjör­var, það fer þér betur að tala um fót­bolta en sótt­varnir og það á við um ykkur flesta.

Á meðan twitt­er­notandinn kalkuna­kjag­tan segir: Hvaða aumingji er þetta?

Jakob segir: Kefla­vík falla með 0 stig í ár

Fleiri fréttir