Ugla tjáir sig um Ivu: „Ég á erfitt með að skilja hvernig það getur talist annað en fordómafullt“

Ugla Stefanía Kristjönu­dóttir Jóns­dóttir, fyrr­verandi for­maður Trans Ís­lands, kynja­fræðingur og sér­fræðingur í mál­efnum hin­segin fólks, segir að sér finnist ekkert ó­eðli­legt við það að Ferða­mála­stofa, Sjálfs­björg lands­­sam­bands hreyfi­hamlaðra og Ör­yrkja­banda­lag Ís­lands vilji ekki kenna sig við Ivu Marín Adrichem.

Til­­efnið eru fréttir af því að Iva Marín hefði verið klippt út úr kynningar­­mynd­bandi um að­­gengi á vegum Ferða­­mála­­stofu, Sjálfs­bjargar lands­­sam­bands og Ör­yrkja­banda­lags Ís­lands, að þeirra sögn á grund­velli skoðana hennar á trans fólki.

„Mér finnst ekkert ó­eðli­legt við það að sam­tök segi skilið við fólk sem hefur verið í for­svari fyrir hópa sem hafa það eitt að leiðar­ljósi að beita sér gegn réttindum minni­hluta­hópa. Þvert á móti myndi hins­vegar finnast það stór­furðu­legt að sam­tök vilji kenna sig við slíka ein­stak­linga,“ skrifar Ugla um málið á Face­book.

Nafn Ivu er að finna undir um­deildri um­sögn Sam­takanna 22, um svo­kallað bælingar­frum­­varp en mark­mið frum­­varpsins er að gera refsi­vert að beita nauðung, blekkingum eða hótunum til að fá ein­stak­ling til að undir­­­gangast með­­ferð í þeim til­­­gangi að bæla eða breyta kyn­hneigð, kyn­vitund eða kyn­tjáningu hans.

Í um­­­sögninni til fasta­­nefndar Al­þingis er varað við því að það geti leitt til þess að börn sem myndu annars vaxa úr grasi sem hommar eða lesbíur sæti ó­­aftur­kræfri kyn­­leið­réttingu fyrir sjálf­ræðis­aldur. Iva vildi ekki tjá sig efnis­lega um um­sögnina í gær en sagðist hafa skrifað nafn sitt undir sem ein­stak­lingur, auk þess hefði Ferða­mála­stofa aldrei hafa vísað í um­rædda um­sögn.

Í sam­tali við Frétta­blaðið segir Ugla að sér finnist málið furðu­legt. „Hér er ein­stak­lingur sem hefur til dæmis skrifað undir um­sögn á Al­þingi þar sem hópur fólks leggst gegn því að trans fólk fái vernd frá bælingar­með­ferðum, sem eru í rauninni pyntingar og við­komandi ein­stak­lingur skrifar nafnið sitt undir þessa um­sögn.“

Ugla segir að í um­sögninni megi finna alls­konar mýtur og rang­færslur um trans fólk og kyn­vitund. „Hún gengur út á það að grafa undan því að trans fólk sé það sem það segist vera og fer út í það að segja að trans fólk sé í rauninni ungt sam­kyn­hneigt fólk sem hafi verið þrýst út í ein­hvers­konar með­ferðir, sem er náttúru­lega svo fjarri sann­leikanum að það hálfa væri nóg,“ segir Ugla.

„Vegna þess að kyn­hneigð og kyn­vitund er náttúru­lega ekki sami hluturinn og fólk þekkir alveg muninn á því. Fólk veit alveg muninn á sinni kyn­hneigð og sinni kyn­vitund og sömu­leiðis getur trans fólk haft alls­konar kyn­hneigðir eins og hver annar. Þannig að þessi rök að þetta sé bara sam­kyn­hneigt ruglað fólk halda engu vatni.“

Ugla segir að burt séð frá öllu því sem fram komi í um­sögninni sé ljóst að ein­staklingarnir sem þar riti nafn sitt undir leggist gegn því að trans fólk fái á­kveðna laga­lega vernd.

„Ég á erfitt með að skilja hvernig það getur talist annað en for­dóma­fullt og kannski í besta falli gróft skilnings­leysi á að­stæðum trans fólks.“

Hægt er að lesa meira hér.

Fleiri fréttir