Á meðan þingmenn stjórnarandstöðunnar kepptust við að komast í pontu Alþingis í gær og ræða málefni Sigurðar Inga, innviðaráðherra, ákvað Tómas A. Tómasson, kenndur við Búlluna, að ræða eitthvað allt annað.
Hann talaði um stolt sitt að vera Íslendingur og ferðalög sín um heiminn, meðal annars til Bangkok og San Diego.
Það má með sanni segja að ræðan hafi verið áhugaverð, sérstaklega í ljósi atburða síðustu daga.
„Virðulegi forseti. Háttvirtir þingmenn og kæra þjóð, ég hef ferðast meira en góðu hófi gegnir um allan heim og alls staðar sem ég kem þá segi ég að ég sé frá Íslandi og ég er mjög stoltur af því. Ég var í Bangkok á tveim stöðum sama daginn, ég sagði frá Íslandi, þá sagði viðmælandi minn: Eiður Gudjohnsen. Ég var í Buenos Aires og þá sagði viðmælandi minn GusGus. En það sem ég vildi segja við ykkur er þetta að árið 1991 þá fór ég til San Diego í boði Jóns Sigurðssonar sem seinna varð ráðherra og hann fór með mig á samkomu Íslendinga í alþjóða garðinum í San Diego. Þar voru samankomnir 40 einstaklingar sem flestir töluðu ekki íslensku og höfðu margir hverjir aldrei komið til Íslands. En þau voru svo stoltir af því að vera Íslendingar að þeir hefðu þörf fyrir að láta alla vita og ég segi bara: Sitt sýnist hverjum. Takk.“