Tobba Marínós lærði mikilvæga lexíu af konu sem sigraðist á krabbameini

Tobba Marínósdóttir talar um það sem svo miklu máli fyrir heilsuna en fáir gefa of lítinn gaum í nýjustu bakþönkum sínum í Fréttablaðinu.

„Ég hitti konu um daginn sem hafði sigrast á krabbameini. Hún lýsti fyrir mér hvernig hún hefði tekið líf sitt og venjur í gegn eftir að hún greindist. Hvernig hún vildi búa til hraustari líkama – líkama sem væri ekki vænleg bráð fyrir sjúkdóma. Hún las allt sem hún komst yfir um styrkingu ónæmiskerfisins og hvernig styrkja má líkama og sál. Vissulega þurfti hún að taka mataræðið í gegn, sofa vel, forðast unna matvöru og hreyfa sig reglulega. En það sem kom mest á óvart var hláturinn sagði hún og hló svo innilega að allt fallega andlitið á henni ljómaði,“ segir Tobba og að hún hafi þá krafið konuna svara.

„Okkar góða kona sagðist hafa farið á fyrirlestur þar sem farið var yfir líffræðilegt mikilvægi þess að hlæja. Ná þeirri slökun og endorfínframleiðslu sem fylgir góðum hlátri auk þess sem hlátur getur styrkt ónæmiskerfið með framleiðslu varnarfrumna. Þar að auki er ekki hægt að vera stressaður og óhamingjusamur um leið og þú hlærð innilega – svo niðurbrotið sem fylgir streitu er útilokað þegar hláturinn fær að taka við,“ segir Tobba og að konan hafi á erfiðum tíma þurft að byrja að hlæja meira.

„Skilnaður, fjárhagsáhyggjur og veikindi. Ekkert fyndið þar. En hún var ákveðin í að hlæja. Fyrst byrjaði hún að horfa á uppáhaldsgrínþættina sína frá upphafi og svo leitaði hún að hlátrinum markvisst og hefur gert síðan,“ segir Tobba og spyr svo:

„Hvenær hlóst þú síðast svo innilega að þig verkjaði í magann?“

Fleiri fréttir