Tillitsleysi eða eðlileg hegðun? – „Fólk þarf að taka tillit til nágranna sinna, ekki satt?“

Skiptar skoðanir eru um það meðal íbúa í Langholtshverfi um það hvort maður eigi rétt til bílastæða sem maður hefur haft fyrir því að moka snjó úr..

„Það býr ungur maður rétt hjá mér og s.l. laugardag þurfti ég að moka bílinn minn út úr snjó í rúmlega klukkustund til að komast í búð,“ skrifaði íbúi í hverfinu á hverfishóp Langholtshverfis á Facebook. „Þegar ég kom til baka eftir klukkutíma þá var þessi tillitslausi maður búinn að leggja í stæðið sem ég hafði mokað en honum datt ekki í hug að moka fyrir framan sitt hús, fólk þarf að taka tillit til nágranna sinna, ekki satt?“

Ekki voru allir sem skrifuðu við færsluna sammála um það hvort tillitsleysi væri að leggja í stæði sem einhver annar hefði mokað úr. „Er umrætt stæði einkastæðið þitt?“ var spurt í einni athugasemdinni. „Er þetta í þinni innkeyrslu? Eða er þetta bara stæði í götunni þinni sem þér finnst þú eiga rétt á því þú mokaðir það?“

„Það væri nú frábært ef allir mundi virða það að það sé búið að handmoka stæði þar sem það er nokkuð augljóst…“ sagði annar meðlimur í hópnum, „eeeen sé það ekki einkastæði er ekki hægt að gera ráð fyrir að það bíði manns.“ „Tillitsleysi eða einstaklingur að leggja í stæði sem er til fyrir alla.....??“ skrifaði enn annar.

Aðrir voru sammála þeim sem skrifaði upphaflegu færsluna. „Algjört tillitsleysi og yfirgangur í manninum,“ sagði ein. „Gæti ekki verið meira sammála þér!“ skrifaði önnur.

Í færðinni sem hefur verið á landinu síðustu daga má gera ráð fyrir því að margir landsmenn verði að taka fram skóflur til að leysa bílana sína. Æ fleiri Íslendingar verða því vafalaust að taka afstöðu til siðferðis þess að leggja í stæði sem aðrir hafa mokað úr.

Fleiri fréttir