Tíðni sjálfsvíga hrynur í Japan

Samkvæmt frétt Guardian hefur tíðni sjálfsvíga í Japan hrunið um 20 prósent, sé aprílmánuður í ár borinn við apríl í fyrra. Mikil umræða hefur verið um slæm áhrif þess mikla álags sem vinnuveitendur setja á starfsfólk í landinu.

Þykja tölurnar sýna að lokun skóla, breyting á samgönguleiðum og aukin tími með fjölskyldunni nú á meðan heimfaraldurinn reið yfir, hafi haft góð áhrif á andlega heilsu Japana. Tíðni sjálfsvíga í landinu hefur statt og stöðugt farið lækkandi síðustu árin.

Ástandið þótti verst rétt um aldamótin, eftir hrun asíska ,,efnahagsundurisins“ árið 1997. Staðan hefur farið batnandi frá árinu 2003. Þó hefur aldrei verið jafn mikill munur milli ára og nú, sem þykir líkt og áður kom fram gefa í skyn að góð áhrif af hlotist af því að hægja aðeins á lífsmynstrinu.

Fleiri fréttir