Nóbelsverðlaun Halldórs Laxness eru geymd í Myntsafni Seðlabanka Íslands og Þjóðminjasafns. Fréttablaðið fjallar um málið í blaði dagsins.
Tæpum þrjátíu árum eftir að Halldór hlaut nóbelinn, árið 1985, gaf Halldór Myntsafninu heiðurspeninginn og önnur gögn sem fylgt höfðu verðlaununum sem varðveitt hafa verið í bankanum alla tíð síðan.
Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri hjá Seðlabankanum, segir að verðlaunin séu geymd í sérstakri og öruggri geymslu. „Við erum hins vegar yfirleitt ekki að upplýsa nákvæmlega eða frekar í hverju öryggi felst í geymslum okkar.“
Spurður hvort það hafi einhvern tíma komið til greina að selja verðlaunapening Halldórs Laxness, segir Stefán Jóhann: „Það hefur aldrei komið til greina að selja peninginn enda samræmist það ekki tilganginum með gjöfinni.“
Þó hefur það komið fyrir erlendis að fólk selji nóbelsverðlaunin sín, en það virðist ekki vera stefnan hjá Seðlabankanum. Til að mynda var einn peningur seldur á dögunum fyrir 103,5 milljónir dollara, eða rúmar 13 milljarða íslenskra króna. Ágóðinn rann í hjálparstarf UNICEF fyrir börn á flótta vegna stríðsins í Úkraínu.
Nánar er fjallað um málið á vef Fréttablaðsins.