Þröstur Reynisson missti bæði móður sína og föður með stuttu millibili úr COVID-19 sjúkdómnum í lok mars og byrjun apríl síðastliðnum. Þröstur opnar sig um missinn í afar persónulegri færslu sem hann birti á Facebook hópnum „Kórónuveiran COVID-19.“
Hann hefur gefið Hringbraut góðfúslegt leyfi til að birta þessa umfjöllun um pistilinn en með honum lætur Þröstur fylgja tvær myndir sem sýna sorg föður hans og leiði foreldra hans.
Ljóst er að Þröstur vonar að pistillinn verði áminning til margra um að fara varlega og taka hættum af völdum faraldursins alvarlega, nú þegar önnur bylgja faraldursins gengur yfir hér á landi.
„Nú er svo komið að aftur þurfum við að taka lífinu alvarlega, ég ætla ekki að skamma neinn að þessu sinni en mig langar að deila með ykkur mjög persónulegri reynslu,“ skrifar Þröstur.
„23. mars síðastliðinn dó mín ástkæra móðir úr Covid 19, eftir sat faðir minn og syrgði hana, hann tapaði sinni baráttu 2. apríl. mig langar að deila með ykkur mjög persónulegum myndum sem ég tók á meðan við fjölskyldan tókumst á við afleiðingarnar. Fyrsta myndin lýsir af einhverju leiti þeirri sorg sem faðir minn gekk í gegnum á meðan móðir mín barðist við þennan sjúkdóm og seinni myndin mun vonandi minna ykkur á það sem mun gerast ef þið takið þessu ekki alvarlega.“