Þrjú Íslensk fyrirtæki á svörtum lista vegna starfsemi sinnar í Rússlandi

Þrjú íslensk fyrirtæki fá falleinkunn fyrir viðbrögð og starfshætti sína í Rússlandi í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu. Alls eru sex íslensk fyrirtæki á listanum, en ekkert þeirra hlýtur hæstu eða næsthæstu einkunn. Fréttablaðið greinir frá.

Það er bandaríski háskólinn Yale sem tekur listann saman, en hann samanstendur af 1229 fyrirtækjum, sem ýmist fá A, B, C, D, eða F í einkunn, þar sem A er hæsta einkunn og F er falleinkunn.

Líkt og áður segir hljóta þrjú íslensk fyrirtæki falleinkunn, en það eru Hampiðjan, Knarr Maritime og Sæplast. Fyrirtæki sem fá F eru þau sem ekki hafa dregið úr starfsemi sinni í Rússlandi.

Fram kemur að Hampiðjan sé ennþá starfrækt í Rússlandi á þremur stöðum. Og þá er starfsfólk á vegum Knarr enn þá að stunda viðskipti Rússlandi og samkvæmt Yale sinnir fyrirtækið mikilvægu hlutverki þar í landi. Minna kemur fram um Sæplast en tekið er fram að fyrirtækið hafi ekki brugðist opinberlega við innrás Rússa og ekki gefið út hvernig starfsemi sín muni breytast austanhafs og að fyrirtækið stundi innfluting til Rússlands.

Mynd af starfstöðvum fyrirtækisins af vefsíðu Hamiðjunnar. Athygli vekur að fyrirtækið merkir ekki við Rússland þrátt fyrir þrjár starfstöðvar þarlendis.

Hin íslensku fyrirtækin eru Marel og Naust Marine, sem fá bæði D, og þá fær Eimskip C.

Samkvæmt Yale er Marel með um það bil sjötíu starfsmenn í Rússlandi og þá segir að starfseminn þar í landi skili um það bil fjórum prósentum af árstekjum fyrirtækisins. Síðan segir að Naust sé með ellefu stór verkefni í gangi í Rússlandi.

Hægt er að lesa á Fréttablaðinu.

Fleiri fréttir