„Þrátt fyrir allt þetta mikilvægi og alla þessa ábyrgð er lögreglustarfið orðið láglaunastarf“

„Þrátt fyrir allt þetta mikilvægi og alla þessa ábyrgð er lögreglustarfið orðið láglaunastarf á íslenskum vinnumarkaði. Ég hef oft heyrt „þið eruð bara hundar og þrælar ríkisins” þegar ég hef verið við störf. Ég hef ekki látið slík orð bíta á mig enda eru aðstæður þeirra sem láta slík orð falla ekki öfundsverðar. En eftir því sem ég hugsa þetta betur þá er stórt sannleikskorn í þessu.“

Þetta skrifar Hermundur Guðsteinsson, lögregluvarðstjóri, í grein sem birtist á Vísi.is í fyrradag. Hermundur mælir ekki með því að áhugsamir sæki um starf hjá lögreglunni á Íslandi.

„Við þá sem eru að velta þessu starfi fyrir sér segi ég: leitið eitthvert annað. Þetta er illa launað hugsjónastarf þar sem vinnutíminn er slæmur. Þetta er starfsumhverfi kvíða, streitu og kulnunar. Þetta er ófjölskylduvænt, orsakar gjarnan sambúðarslit, hjónaskilnaði og sundrung fjölskyldna. Þetta er einfaldlega ekki þess virði og íslenska ríkið virðir lítils starfsmenn lögreglu. Finnið ykkur eitthvað betra, af nógu er að taka.“

Hann bendir á að lögreglumenn njóti ekki verkfallsréttar, en séu samt skikkaðir til vinnu þar sem vinnutími er sveigður og beygður sem og hvíldarákvæði.

„Lögreglumenn ganga til kjarasamninga eins og aðrar stéttir. Þegar viðsemjendum lögreglumanna, ríkinu, þykir henta. Það er jú ekkert sem kallar á það að semja við lögreglumenn enda hafa þeir ekkert vægi, geta ekkert gert og mega ekkert gera. Má kalla viðburð ef viðsemjendur lögreglu ræða kjarasamninga af alvöru innan árs frá því að fyrri samningur, framlengingarsamkomulag eða gerðardómur féll úr gildi. Þá er, líkt og fyrir hunda og þræla forðum, hent afgöngum og brauðmolum sem þeir þurfa að gera sér að góðu, enda ekki val um að krefjast annars með nokkru móti og þrælsóttinn knýr meirihluta stéttarinnar til að kyngja þurri skorpunni. Það hvernig komið hefur verið fram við lögregluna af íslenskum ráðamönnum má lýsa sem siðleysi og lágkúru. Það er siðlaust og lágkúrulegt að ráðskast með þann sem þú hefur svipt þeim mannréttindum sínum og vopnum til að standa upp og verja rétt sinn. Slík framkoma er einnig nefnd heigulsháttur.“

Hann nefnir að hann líti á starf sitt sem millibilsástand, meðan hann mennti sig í öðru starfi. Það sé hann ekki einn um.

„En hvað er hægt að gera. Ef til vill ekkert, kannski er þetta meitlað í stein. Lögreglumenn hafa ekkert vægi, engan rétt og engin verkfæri til að berjast fyrir bættum launum og kjörum. Ef til vill er best að líta á lögreglustarfið sem þolanlegt millibilsástand meðan fólk nýtir frívaktir til að mennta sig til annarra starfa. Í það minnsta er raunin sú hjá mér og svo mörgum starfsfélögum mínum og er stefnan að tolla í þessu starfi þar til löggiltri menntun er náð á öðrum vettvangi.“

Fleiri fréttir