Þorsteinn V. Einarsson, þáttastjórnandi hlaðvarpsins Karlmennskunar og kynjafræðingur segist ekki vera launahæsti áhrifavaldurinn á Íslandi eins og kom fram í Tekjublaðinu. Hann segir það mikilvægt að vera heiðarlegur og leiðrétta þennan misskilning.
„Eflaust hafa einhver séð fréttaflutning af launum hinna og þessa. Og mögulega rekist á umfjöllun að skv. álagningarskrá er ég sagður vera með um 1,3 m. kr à mánuði. Mikið vildi ég að það væri raunin en mér finnst réttast að benda ykkur allavega á hið rétta. Launin mín voru um 700 þus kr 2021. Laun sem koma til vegna fyrirlestra, samstarfs og ráðgjafar í jafnréttismálum,“ skrifaði Þorsteinn á Facebook.
Hann segir að ástæðan fyrir mismuninum sé að allur rekstur sem tengist hlaðvarpinu Karlmennskan, líkt og kaup á búnaði, auglýsingar og leiga er áætlað sem laun, þegar þetta sé í raun kostnaður.
„Þetta hljómar eins og lygasaga, en ástæða þess að launin eru sögð mun hærri en þau eru í raun er vegna þess að endurskoðandinn gleymdi að skila skattframtalinu mínu,“ skrifar Þorsteinn.
Hægt er að lesa nánar um málið hér.