Þorsteinn V. Einarsson, kynjafræðingur og stjórnandi þáttanna og síðunnar Karlmennskan, var í athyglisverðu viðtali við Frosta Logason í þættinum Ísland í dag í gær.
Því miður virðist það vera óhjákvæmilegur fylgifiskur við baráttu Þorsteins gegn íhaldssömum karlmennskuhugmyndum að fúkyrðum sé ausið yfir á samfélagsmiðlum. Á því var engin breyting í gær, þegar viðtalið við Þorstein var birt í fjölmiðlum, en eginkona Þorsteins, Hulda Tölgyes, vekur athygli á innslag þar sem ónafngreindur maður skrifar: „Hvaða bleiki kúkur er þetta?“
Þau hjónin hafa greinilega húmor fyrir ósmekklegum athugasemdum því Hulda segir að hún hafi grátið af hlátri yfir athugasemdinni. „Það sem ég elska bleika kúkinn eiginmann minn og hans óstöðvandi baráttuþrek,“ skrifaði Hulda ennfremur.
Við þessari athugasemd eiginkonunnar hafði Þorsteinn aðeins eitt svar. „Ég er bleikur kúkur.“
Ég er bleikur kúkur.
— Þorsteinn V. (@idnadarmadurinn) January 19, 2021
Kveðja af Fiðrildadeild https://t.co/LOsHGIGhfb
Fréttablaðið greindi frá því að Þorsteinn væri afar ósáttur við framgöngu Frosta í viðtalinu þar sem þáttastjórnandi þráspurði um kynjakvóta í stuttu innslagi. Þorsteinn segir að hann hafi á tímapunkti viljað hætta að tala um það því spurningarnar hafi krafist ítarlegri og tæknilegri svara sem hann hefði ekki álitið efni innslagsins. Sem er, eins og hann segir í færslu sem hann birtir um málið á Facebook-síðu sinni Karlmennskan, afar stutt og því ekki hægt að kafa djúpt í hugtök og hugmyndir.
„Hins vegar sárnar mér að þáttastjórnandinn teikni þessa senu upp sem svo að ég hafi ekki getað svarað spurningunni og gefur í skyn að „femínistar geti ekki rökstutt kynjakvóta“ og að kynjakvótar séu ósanngjarnt tól í sanngjörnum heimi. Kannski var ekki við öðru að búast af Frosta,“ segir Þorsteinn í færslu sinni.
Nánar um málið á síðu Fréttablaðsins.