Þorsteinn V. Einarsson, þáttastjórnandi podcastsins Karlmennskan spyr sig á samfélagsmiðlinum Twitter af hverju íþróttafréttir skipa svona stóran sess í fréttum:
„ Afhverju eru íþróttafréttir? Og afhverju teljast þær svona merkilegar? - Eru sömu rök fyrir almennum fréttum og síðan íþróttafréttum?“
Færslan hans Þorsteins hefur vakið mikla athygli, enda er mikill áhugi fyrir íþróttafréttum um allan heim.
Hulda Waage segir: Mér finnst við almennt þurfa fagna meira í fréttum. Það að góðir hlutir gerast það er fréttnæmt. Ætti að eiga við um allt tengt menningu þ.á.m. íþróttir. Aftur á móti þarf að girða í brók og vera ekki einungis með boltafréttir; væri svipað og vera með bara leikhúsfréttir.
Þá finnst Inga Frey ótrúlegt að íþróttir fái sama vægi og aðrar fréttir: Alveg grillað að “lið léku sér saman við bolta” fái sama vægi og heimssögulegir viðburðir í fjölmiðlum
Halldór Marteins hafði þetta að segja: Sögulegt og menningarlegt gildi íþróttafrétta hlýtur að hafa verið rannsakað einhvers staðar. En ætli þetta sé ekki haft sér til að það sé auðveldara að sleppa þeim fyrir þau sem hafa engan áhuga á íþróttafréttum. Gæti trúað því.
Baldvin Már sagði: Ætli rökin séu ekki að meira en helmingur mannkyns fylgist með íþróttum í einhverju formi og því eiga fréttir af íþróttaviðburðum heima í fréttatíma. Hvort það ætti frekar þá að að vera sér íþróttaþáttur alveg eins og sér menninga og listaþáttur er svo önnur umræða.
Sem Þorsteinn svaraði: Gilda þau rök um fréttir af handbolta- og fótboltaleikjum á Íslandi? Það skoða fleiri storyið mitt en mæta á stóra íþróttaleiki á Íslandi.
Aron Kristinn í ClubDub sagði að þetta um svar Þorsteins: mest cringe tweet annars ársfjórðungs 2022.
Afhverju eru íþróttafréttir? Og afhverju teljast þær svona merkilegar? - Eru sömu rök fyrir almennum fréttum og síðan íþróttafréttum?
— Þorsteinn V. (@idnadarmadurinn) May 1, 2022
mest cringe tweet annars ársfjórðungs 2022 https://t.co/UgAZaA5uoL
— aron kristinn (@aronkristinn) May 1, 2022