Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingkona og formaður Viðreisnar, sparar ekki stóru orðin í garð Lilju D. Alfreðsdóttur, ráðherra og þingkonu Framsóknarflokksins.
„Aðför Lilju Daggar Alfreðsdóttir að einstaklingi, konu sem leitaði réttar síns, er fordæmalaus. Lilja er fyrsti ráðherrann í sögunni til að fara með slíkt jafnréttismál fyrir dómstóla. Það er nú öll ástin á jafnréttismálum hjá Framsókn. Og vel að merkja; Lilja var rassskellt fyrir Héraðsdómi. Dómurinn var mjög afhjúpandi. Umræða um vantraust hefur farið fram af minna tilefni,“ segir Þorgerður Katrín og segir að hér sé á ferðinni eitt versta dæmi um valdníðslu í íslensku stjórnkerfi í lengri tíma með tilheyrandi kostnaði fyrir almenning og vísar þar í mál Lilju gegn Hafdísi Helgu Ólafsdóttur.
Í gær var greint frá því í gær að menntamála- og barnamálaráðuneytið hefði náð sátt við Hafdísi Helgu en Lilja stefndi henni sem mennta- og menningarmálaráðherra eftir að kærunefnd jafnréttismála komst að þeirri niðurstöðu að brotið hefði verið á Hafdísi Helgu þegar hún var ekki metin í hópi hæfustu þegar hún sótti um sem ráðuneytisstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu þegar Lilja var ráðherra þar.
„Þetta var bakslag í jafnréttisbaráttunni. Og skeytingarleysi gagnvart stjórnsýslunni sem einstaklingum,“ segir Þorgerður Katrín og að Framsóknarflokkurinn eigi að biðja þjóðina, skattgreiðendur og Hafdísi Helgu Ólafsdóttur afsökunar
Færslu Þorgerðar Katrínar er hægt að sjá hér að neðan.