Þórdís sigraði í Norðvestur og Haraldur er í öðru sæti

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sigraði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi með 1.347 atkvæði. Alls greiddu 2.289 atkvæði í prófkjörinu.

Haraldur Benediktsson, sem áður leiddi listann, hafnaði í öðru sætinu og því á eftir að koma í ljós hver mun verma það sæti því Haraldur lýsti því yfir í aðdraganda prófkjörsins að hann myndi ekki þiggja það sæti.

Gild atkvæði voru 2.232 og skiptast þannig:

Í 1. sæti með 1.347 atkvæði í 1 sæti er Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir

Í 2. sæti með 1.061 atkvæði í 1-2 sæti er Haraldur Benediktsson

Í 3. sæti með 1.190 atkvæði í 1-3 sæti er Teitur Björn Einarsson

Í 4. sæti með 879 atkvæði í 1-4 sæti er Sigríður Elín Sigurðardóttir

Fleiri fréttir