Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, utanríkisráðherra, sagði Sigurð Inga Jóhannsson, innviðaráðherra, hafa svarað því vel hvort að hann ætlaði að biðjast afsökunar á ummælum sínum um að ráðamenn í Kreml væru illmenni í vikunni en rússneska sendiráðið krafðist þess í yfirlýsingu.
Sigurður Ingi sagðist ekki ætla að biðjast afsökunar og sagði að stjórnvöld sem beita hervaldi gegn fullvalda ríki þar sem saklausir borgarar eru skotmörk ættu að hafa skilning á því að lýðræðisþjóð eins og Íslendingar gætu ekki setið undir slíku.
„Rússar ættu að fara strax frá Úkraínu og axla ábyrgð á sínum gjörðum,“ sagði hann í samtali við Fréttablaðið.
Spurð um þessi ummæli Sigurðar Inga í diplómatísku samhengi í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun sagði Þórdís Kolbrún þau vissulega óvenjuleg en að það væri ástandið líka. Nánar var farið yfir viðtal Þórdísar á vef Fréttablaðsins í dag.