Þjóðverjar sigurvissir - nenna ekki að skoða Laugardalsvöll

Þýska landsliðið ætlar ekki að æfa á Laugardalsvelli fyrir leikinn á morgun gegn Íslandi. Liðið nennir ekki einu sinni að skoða völlinn en engin ósk hefur borist KSÍ þess efnis. Hansi Flick, landsliðsþjálfari Þýskalands, hélt blaðamannafund í gegnum Zoom í dag þar sem sá þýski fékk tvær spurningar um Ísland og íslenska leikmenn.

„Íslenska liðið sýndi hvað það getur með að jafna leikinn gegn Norður-Makedóníu. Íslendingarnir leggja mikið á sig og fá öflugan stuðning frá stuðningsmönnum sínum,“ sagði Flick. Aðspurður um lykilmenn svaraði hann einfaldlega. „Við vitum að Ísland er gott lið," sagði Flick.

Fleiri fréttir