Þingmenn hnakkrífast um leti og dugnað: „Allir tipla á tánum kringum frekjudósirnar“

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og þingmenn Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Björn Leví Gunnarsson rökræða á samfélagsmiðlum um dugnað eftir að Björn Leví og Brynjar lentu í orðahnippingum á Bylgjunni í morgun um fyrirspurnagleði Björns Leví.

Þórhildur Sunna benti á að Brynjar hafi nú á dögunum sent inn tíu fyrirspurnir, eina til hvers ráðuneytis fyrir sig, um þann kostnað og vinnustundir sem færu í að svara fyrirspurnum.

„Latasti þingmaðurinn kvartar yfir vinnusemi kollega síns. You can´t make this shit up,“ skrifar Þórhildur Sunna í færslu á Facebook.

Á Bylgjunni akkúrat núna eru Björn Leví og Brynjar Níelson að tala um fyrirspurnir Björns Leví. Brynjar Níelsson sem...

Posted by Þórhildur Sunna Ævarsdóttir on Wednesday, May 20, 2020

Brynjar svaraði fyrir sig í kvöld og er hann harðorður um ákveðna þingmenn sem hann telur ekki vera sérstaklega duglega.

„Einkennilegt hvað allir tipla á tánum kringum frekjudósirnar á þingi sem vaða yfir allt og alla á skítugum skónum - þá sjaldan þau eru í skóm. Þetta er oft fólk á jaðrinum sem heldur jafnvel að það sé sérstaklega duglegt, sem er merkilegt því sum þeirra sjást oft ekki á þinginu vikum saman,“ skrifar Brynjar á færslu sem hann birti á Facebook.

Brynjar og Björn Leví ræddu um fyrirspurnir á Bítinu á Bylgjunni í morgun. Heimir Karlsson og Gunnlaugur Helgason útvarpsmenn bentu Birni á að hann væru óvenju fyrirspurna-glaður. Björn tók undir með því og benti á að hann væri vanur að spyrja gagnrýninna spurninga þar sem hann væri úr akademíunni.

Sjá frétt Hringbrautar um viðtalið á Bylgjunni.

Brynjar heldur áfram á Facebook að fjalla um fyrirspurnagleðina:

„Dugnaður felist í að koma með tilgangslausar fyrirspurnir í gríð og erg og leggja fram sem flest frumvörp, sem eiga það sammerkt að vera að mestu ónothæf. Það getur sjálft ekki farið eftir reglum en heldur að þjóðkjörnir fulltrúar eigi fyrst og fremst að vera rannsóknardómarar yfir ráðherrum, embættismönnum og öðrum og kveða helst dómana upp áður en rannsókn hefst.“

Hann telur að þrátt fyrir „dugnaðinn“ séu þessir þingmenn ekki að setja sig inn í málefni helstu atvinnugreina þjóðarinnar.

„Kannski er skýringin sú að flest þeirra hafa takmarkaða reynslu af atvinnulífinu og hafa sennilega lifað að mestu í einhverjum hliðarveruleika og halda að verðmætin verði til niðri í Tryggingastofnun.“

Hæfilegur skammtur af sýndarmennsku

„Mér sem sérfræðingi í mannlegri hegðun kemur mest á óvart hvað þau eru viðkvæm fyrir gagnrýni á sama tíma og þau væna aðra nánast daglega um spillingu og óheiðarleika og þaðan af verra. En það er alltaf sama sagan - hæfilegur skammtur af sýndarmennsku og lýðsleikju fleytir mörgum yfir fimm prósentin.“

Einkennilegt hvað allir tipla á tánum kringum frekjudósirnar á þingi sem vaða yfir allt og alla á skítugum skónum - þá...

Posted by Brynjar Níelsson on Wednesday, May 20, 2020

Björn Leví bendir á í færslu á Facebook að Brynjar hafi verið skráður sem aðalmaður á 103 fundi en hafi einungis mætt á 80.

„Já, það eru ýmsar mælingar á dugnaði. Til dæmis er hægt að bera saman mætingu í nefndir en þar er Brynjar skráður sem aðalmaður á 103 fundi á yfirstandandi þingi en hefur einungis mætt á 80 af þeim. Varamaður mætti í hin skiptin. Til viðbótar við það mætti Brynjar samtals tveimur klukkustundum og þrjátíu og tveimur mínútum of seint.“

Sunna er skráð á 51 nefndarfund á þessu þingi og hefur mætt á þá alla, með 56 mínútur af akademísku korteri til viðbótar.Til viðbótar við það mætti Brynjar samtals tveimur klukkustundum og þrjátíu og tveimur mínútum of seint. Sunna er skráð á 51 nefndarfund á þessu þingi og hefur mætt á þá alla, með 56 mínútur af akademísku korteri til viðbótar.“

"48. gr. Alþingismenn eru eingöngu bundnir við sannfæringu sína og eigi við neinar reglur frá kjósendum sínum" Þarf...

Posted by Björn Leví Gunnarsson on Wednesday, May 20, 2020

Fleiri fréttir