„Þið mynduð líka fá smjörputta eftir 15 mínútna ræðu um hlutafélög,“ skrifaði Lenya Rún Taha Karim varaþingmaður Pírata við myndband af sjálfri sér á Twitter þar sem hún var að halda ræðu á Alþingi.
Í myndbandinu má sjá Lenyu missa penna úr höndunum með tilheyrandi látum en virðist hún ekki hafa látið það slá sig út af laginu og heldur áfram með töluna.
Fylgjendum þóttu það afar fyndið og segja þetta meðal annars hafa bjargað kvöldinu þeirra.
þið mynduð líka fá smjörputta eftir 15 mínútna ræðu um hlutafélög pic.twitter.com/2kfggVmOTq
— Lenya Rún (@Lenyarun) December 5, 2022