Þing­maður hjólar í konurnar sem stóðu upp gegn Sól­veigu: „Hverjar telja þær sig eigin­lega vera?!“

Fjórar konur, Phoenix Jessi­ca Ramos, Agnieszka Sokolowska, Cristina Milcher og Wiktoria Joanna Gin­ter, veifuðu rauðum spjöldum og skila­boðum í mót­mælum sínum gegn Sól­veigu Önnu Jóns­dóttur á Jafn­réttis­þingi í morgun.

Yfir­skrift jafn­réttis­þingsins í ár var staða kvenna af er­lendum upp­runa á vinnu­markaði – að­gengi, mögu­leiki og hindranir.

Konurnar sem mót­mæltu telja Sól­veigu Önnu ekki trú­verð­ug­an tals­mann er­­lendra verka­­kvenna, enda hafi hún unn­ið gegn þeim og rétt­ind­um þeirra.

Sem dæmi má nefna að þegar Sól­veig Anna tók þátt í að reka stóran hluta af starfs­mönnum Eflingar og var Phoenix Jessi­ca Ramos meðal þeirra. Sól­veig sagði að allir gátu sótt um störf sín aftur en Ramos gat það ekki því nú var búið að bæta við kröfu um ís­lens­kunn­áttu.

Sól­veig svaraði mót­mælunum á Face­book síðu sinni og sagði þau æsa sig upp og era sig enn for­hertari. „En það er allt í lagi; þær skipta mig og fé­laga mínu engu máli. Við erum á leið á völlinn, mörg, sam­einuð og sterk. Og þau til­þrif sem við munum sína þar verða þannig að engum þarf að leiðast. Ég lofa því.“ eru lokorð færslu Sól­veigar.

Fjöl­margir taka undir með verka­lýðs­foringjunum á Face­book og keppast stuðnings­menn Sól­veigar við að urða fúk­yrðum yfir konurnar fjórar. Þær eru meðal annars sagðar hafa „lítinn skilning á þeim pólitíska leik sem tengist og ræður stéttar­kerfi Ís­lands“ og „knúnar af eigin­girni“

„Vonandi komu þessar kerlingar sér til sín heima. Förum að hreinsa land­sið af þessum skríl,“ skrifar Sig­rún Björns­dóttir.

Þá eru þó nokkrir sem kalla þær kerlingar.

At­hygli vekur að Ásta Lóa Þórs­dóttir þing­maður Flokks fólksins tekur þátt og hjólar í konurnar.

„Var þetta í al­vörunni gert?! Því­­líkur dóna­­skapur og van­virðing! Þeim má finnast það sem þeim vill um mál­flutning þinn, en þetta er argasti dóna­­skapur, svo ekki sé minnst á hrokann; "VIÐ erum að dæma þennan leik". Hver gerði ÞÆR að dómara? Og hverjar telja þær sig eigin­­lega vera?! Mig skortir orð,“ skrifar Ásta Lóa.

Fleiri fréttir