Þetta kostar bensínlíterinn á Tenerife: „Brá þegar ég sá verðið á dropanum”

Anna Kristjánsdóttir sem er búsett á Tenerife, segir að henni hafi brugðið þegar hún kom auga á verðið á bensínlítranum á eyjunni fögru.

Í færslunni kemur fram að spænsk yfirvöld hafi niðurgreitt bensín frá því að stríðið í Úkraínu hófst en því virðist lokið.

Því hafi Anna borgað nítíu evrur fyrir 71 lítra eða tæplega 14 þúsund íslenskar krónur og greiddi því um 193 krónur íslenskar á lítrann „búið að reikna frjálst gengisfall íslensku örkrónunnar inn í bensínverðið”

Í kjölfarið af því hafi Anna hugsað til síðasta hausts, áður en Ásgeir seðlabankastjóri hafi farið að öfundast út í Íslendinga á Tenerife, þegar evran var undir 140 krónum í ljósi þess að evran sé komin uppí 152,2 krónur í dag.

Fleiri fréttir