Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor í ónæmisfræði við Háskóla Íslands, er með nokkur ráð til Íslendinga sem vilja passa upp á ónæmiskerfið sitt á tímum kórónaveirunnar. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 segir Björn að svefn, hreyfing, mataræði og andleg heilsa skipti lykilatriði. Hann segir óreglufólk ætti að hugsa sinn gang nú þegar faraldur geysar.
Björn kallar það „ónæmisdekur“ að hugsa vel um þessa hluti. Þar segir Björn að svefn sé efstur á listanum. Rannsóknir sýni að ef fólk sofi fjóra tíma eða minna er það fjórfalt líklegra til að fá sýkingar og þá sérstaklega inflúensu eða kvefpestir, í samanburði við þá sem sofa sex tíma eða lengur.
Þá nefnir Björn andlega heilsu. Mikilvægt sé að fólk passi upp á að sér líði vel. Að það sé ekki í of miklu áreiti og stressi. Margar rannsóknir sýni að mikið álag, stress, áföll, rifrildi við maka eða aðra nána, skerði starfsemi ónæmiskerfisins. Fólk eigi að reyna í lengstu lög að vera í stresslitlu umhverfi.
Björn segir jafnframt að hreyfingin skipti miklu máli. Ekki þarf að hreyfa sig mikið. Fólk getur hreyft sig að lágmarki 15 til 20 mínútur á dag, helst 20 til 40 mínútur og þarf oft ekki oftar en tvisvar til þrisvar í viku. Rannsóknir sýni að það efli ótvírætt starfsemi ónæmiskerfisins. Þá virkar það líka gegn allskonar bólgum og verkjum.
Að síðustu segir Björn að grunnfæðuflokkarnir skipti sérstöku máli fyrir ónæmiskerfið okkar. Eðlilegt mataræði ksipti miklu, helst skal borða litskrúðuga ávexti. Séu margir litir borðaðir sé líklegra að viðkomandi sé að fá mismunandi næringarefni.
Þá eru snefilefnin og vítamín mikilvæg. Meðal snefilefna skipti járn ónæmiskerfið miklu. Fæstir séu með járnskort, nemahelst ungar konur á barneignaaldri og fólk með sjúkdóma. Passa þarf vel upp á járnbúskapinnþ
Þá skipta vítamínin einnig máli. A-vítamínið skipti miklu fyrir ónæmiskerfið sem og E-vítamín. Sjaldgæft sé þó að fólk skorti þetta, þar sem þetta megi finna mikið í græna grænmetinu okkar, hnetum, fiski og kjúkling. D-vítamín skiptir einnig miklu og fyrir marga aðra starfsemi segir Björn. Heilbrigð bein meðal annars og mikilvægt að fólk hugsi um D-vítamínið á norðlægum slóðum.
Björn segir að nú sé góður tími fyrir þá sem reykja, veipa, noti tóbak í nef eða vör eða drekki óhóflega að hugsa sinn gang. „Ef einhvern tímann var ástæða til að breyta lífi sínu í rétta átt og stunda heilbrigðara og betra líferni, hætta óreglunni og reykingum og öðru slíku, þá er þetta klárlega tíminn. Við vitum það að þeir sem eru í hættu eru þeir sem eru stunda óheilbrigt líferni, fyrir utan þá sem eru orðni aldraðir og ónæmisbældir, þá er þessi hópur, ungt fólk sem er að fara illa með sig, nú er tíminn til að hætta að reykja og veipa.“