Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR vill að Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar verði annar varaforseti Alþýðusambandsins, ASÍ. Þetta staðfesti hann í hlaðvarpinu Helga-spjall.
Ragnar tilkynnti síðastliðinn fimmtudag að hann ætli að bjóða sig fram til forseta ASÍ á næsta þingi sambandsins sem fer fram dagana 10. til 12. október.
Enginn hefur lýst yfir mótframboði gegn Ragnari, en Kristján Þórður Snæbjörnsson, varaforseti ASÍ hefur gegnt starfi forseta eftir að Drífa Snædal sagði af sér.
Ragnar sagði í hlaðvarpinu að hann vildi Sólveigu, Kristján Þórð og Vilhjálm Birgisson, formann Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins með sér sem varaforseta.