Þessum ráð­herrum treystir þjóðin best

Í ný­legri könnun frá Maskínu kemur fram hvaða ráð­herrum al­menningur treystir mest, en sam­kvæmt niður­stöðum könnunarinnar ber þjóðin mest traust til Ás­mundar Einars Daða­son, mennta- og barna­mála­ráð­herra. Um 52.1 prósent þeirra sem svöruðu könnuninni bera mikið traust til hans á meðan 18.2 prósent gera það ekki.

Þar á eftir njóta for­sætis­ráð­herrann Katrín Jakobs­dóttir og heil­brigðis­ráð­herrann Willum Þór Þórs­son mest traust frá al­menningi, en sam­kvæmt niður­stöðum virðast ráð­herrar Fram­sóknar­flokksins og Vinstri græna al­mennt njóta trausts. Ráð­herrar Sjálf­stæðis­flokksins eru þeir ráð­herrar sem njóta hvað minnst traust frá þjóðinni.

Sá ráð­herra sem nýtur minnst traust al­mennings er Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra, en 70.7 prósent þeirra sem svara könnunninni bera lítið traust til hans, en 18.3 prósent bera mikið traust til hans. Sala á hlut ríkisins í Ís­lands­banka hefur ef til vill mikið að segja um niður­stöðurnar, en málið hefur vakið mikla at­hygli og hefur Bjarni og Sjálf­stæðis­flokkurinn hlotið mikla gagn­rýni vegna þess.

Annars eru það Jón Gunnars­son dóms­mála­ráð­herra og Ás­laug Arna Sigur­björns­dóttir, há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköpunar­ráð­herra sem virðast ekki njóta mikils traust frá al­menningi.

Könnunin fór fram þann 22. apríl, en hér fyrir neðan má sjá breytingar milli mælinga síðan síðasta könnun var gerð þann 21. nóvember. Mikið hefur gengið á í ríkis­stjórnar­sam­starfinu og al­mennt má sjá að traust al­mennings hefur lækkað á ráð­herrunum.

Sem dæmi má nefna að traust al­mennings á Sigurði Inga Jóhanns­son inn­viða­ráð­herra hefur lækkað veru­lega síðan 21. nóvember, en ný­lega gerðist hann sekur um rasísk um­mæli í garð Vig­­dísi­ Häsler, fram­­­kvæmda­­­stjóra Bænda­­­sam­­­taka Ís­lands.

Fleiri fréttir