Hrafnhildur V. Kjartansdóttir, náms- og starfsráðgjafi við HÍ, vekur, í hópnum Vesturbærinn á Facebook, máls á óhugnanlegu atviki sem átti sér stað seinni partinn í dag en þá var ungt par að skokka við Eiðsgranda með svarta labrador hunda sem voru báðir lausir. Hún segir að þegar þeir stukku báðir á hana hafi hún meitt sig.
Hún beinir orðum sínum til eigenda hundanna og spyr hvers vegna þau athuguðu ekki með hana og hvort hún væri í lagi.
„Þið sáuð hvað gerðist, kölluðuð á hundana en þið töluðuð ekki við mig til að athuga hvort ég væri í lagi. Ég er ekki í lagi, ég er að jafna mig eftir bakmeiðsli og hnykkur á bakið var ekki það sem ég þurfti,“ segir Hrafnhildur.
Hún segir að þau hafi haldið áfram að skokka en að hún hafi setið á meðan á steini og ekki þorað af komast fram hjá þeim eða kalla til ykkar af ótta við að ná athygli hundanna og fá þá aftur á sig.
„Ég skil alveg að það sé gaman að skokka með hundunum sínum en þetta er samt ekki í lagi að mínu mati OG maður athugar með fólk sem hundarnir stökkva á - eða erum við ekki flest sammála um það?“ spyr Hrafnhildur að lokum.
Fjölmargir taka undir orð Hrafnhildar og benda á að lausaganga hunda sé bönnuð í Reykjavík. Þá velta einhverjir því fram hvort parið hafi ekki talað við hana út af kórónuveirunni, en samskipti ókunnugra hafa minnkað talsvert frá því að veiran gerði vart við sig.