Þegar jólaandinn greip son Snorra Sturlusonar

Óttari Guðmundssyni varð hugsað til liðinna jóla í pistli á heimasíðu Fréttablaðsins í dag. Rifjaði hann þar upp tilvik þar sem friður og göfgi urðu vígahug og heift yfirsterkari á jólunum. Benti hann á eftirminnilegt atvik sem sagt er frá í Sturlungu eftir víg Snorra Sturlusonar.

Í Sturlungu er sagt frá því hvernig Snorri Sturluson var drepinn í Reykholti árið 1241 að skipan Hákonar gamla Noregskonungs. Var einn banamaður Snorra stjúpsonur hans, Klængur Bjarnarson, sem tók við forráðum að Reykholti þegar aðrir fjandmenn Snorra höfðu haft sig á brott.

Eftirleikurinn er ekki eins víðfrægur, en eins og Óttar segir frá kom sonur Snorra, Órækja, til Reykholts nokkru síðar og náði þar völdum á ný. Þar sem þá var kominn aðfangadagur ákvað Órækja að þyrma lífi Klængs í Jesú nafni.

Að vísu varði miskunnsemi Órækju ekki ýkja lengi: „Á öðrum degi jóla rann þó hátíðleikinn af Órækju og hann lét hálshöggva fangann sem reyndar var fyrrverandi stjúpbróðir hans.“

Fleiri fréttir