„Þægilegt að losna við mig“

Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason ræðir á opinskáan hátt um það þegar honum var sagt upp störfum hjá Stöð 2 árið 2008 í nýjum þætti af hlaðvarpinu Skoðanabræðrum. Þáttinn má hlusta á hér að neðan.

Hann segist telja að uppsögnin hafi tengst því þegar hann hafi byrjað að „pönkast“ í lífeyrissjóðum. Það hafi verið þá sem hann hafi misst sakleysi sitt sem fjölmiðlamaður.

„Tutt­ug­asta des­em­ber held ég að það hafi verið sem ég tek viðtal við Geir H. Haar­de og spyr hann út í líf­eyr­is­sjóðina. Þá er ég líka bú­inn að vera gera alls kon­ar aðra hluti, ég er bú­inn að vera svo­lítið óþekk­ur, og ég áttaði mig ekki á því á þeim tíma að það væru kannski umræður um mig í stjórn­inni. Eitt­hvað um að þetta væri bara ekki al­veg í lagi, afþví ég er bara fréttamaður sem held að ég eigi að segja sann­leik­ann,“ segir Sölvi.

Hann hafi svo skömmu eftir viðtalið verið látinn fara. Bendir Sölvi á að Ari Edwald, núverandi forstjóri Mjólkursamsölunnar, sem þá hafi stýrt 365, hafi meðal annars setið í stjórnum lífeyrissjóða.

Sölvi segist þá hafa farið í sitt solo mission. Hann hafi hitt ýmsa einstaklinga til að komast til botns í málinu, þar sem hann hafi séð fram á að starfa áfram í fjölmiðlum. „Ég hitti Jón Ásgeir, Björgólf Thor, Davíð Odds­son, Ingi­björgu Sól­rúnu og Geir H. Haar­de, og það voru all­ir til í að hitta mig.“

Sölvi lýsir því hvernig Geir hafi sagt honum að Arnar Sigurmundsson, þáverandi formaður Landssamtaka lífeyrissjóðanna hafi hringt í hann og spurt sérstaklega hvernig „þessi strákur“ hafi haft þesar upplýsingar.

„Þegar yf­ir­maður Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða hring­ir í for­sæt­is­ráðherra kort­eri eft­ir að eitt­hvað viðtal er búið þá ertu far­inn að hitta á ein­hverja skrítna strengi, þannig að ég held að ég sé ekk­ert í ein­hverj­um svaka­leg­um sam­særis­kenn­ing­um þegar ég segi að það var þægi­legt að losna við mig,“ sagði Sölvi.

Fleiri fréttir