„Það er af og frá að ég og Elísa­bet höfum bara keypt eitt­hvað fjölda­fram­leitt IKEA eld­hús“

Aðal­steinn Kjartans­son, blaða­maður hjá Stundinni blandar sér í um­ræðuna um gler­augna­mál Gumma Kíró og Línu Birgittu en þau hafa verið sökuð um að þykjast hafa hannað gler­augu sem kosta klink hjá Ali-Express.

„Það er af og frá að ég og Elísa­bet höfum bara keypt eitt­hvað fjölda­fram­leitt IKEA eld­hús. Við veljum stíla, fronta og skápa fyrir eld­húsið sem okkur finnst passa „Aðal­Bet,“ segir Aðal­steinn í háði á Twitter sem svipar til svars Gumma í gær.

En Gummi og Lína harð­neituðu því í gær að gler­augun væru frá Ali-Express.

„Þetta er ekki satt. Ég get al­veg svarað fyr­ir það að við pönt­um ekki frá Ali Express. En við velj­um þá stíla, ramma og lins­ur sem við vilj­um og sem okk­ur finnst passa við okk­ar brand. Við fylgj­umst mikið með götu­tísk­unni og elsk­um að vista mynd­ir af alls­kon­ar lúkk­um og senda á fram­­leiðand­ann,“ sagði Gummi í sam­tali við mbl.is.

Í við­talinu sagði Gummi að þau Lína hafi valið þau gler­augu sem þeim fyndist passa inn í sína línu.

Sjá má tíst Aðal­steins að fullu hér að neðan:

Fleiri fréttir