Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson telur að næstu forsetakosningar muni ekki „á nokkurn hátt stuðla að frjórri umræðu um forsetavald og lýðræði,“ þar sem hann segir Guðmund Franklín Jónsson vera „glataðan“ frambjóðanda en Stefán fer ekki leynt með það að hann komi til með að styðja Guðna Th. Jóhannesson, núverandi forseta, í kosningunum.
Alls eru fimm karlmenn sem bjóða sig fram til forseta í ár en þeir eru; Guðni Th. Jóhannesson, sitjandi forseti, Guðmundur Franklín Jónsson, Axel Pétur Axelsson, Arngrímur Friðrik Pálsson og Kristján Örn Elíasson. Meðmælendasöfnun stendur nú yfir en henni lýkur á þriðjudaginn.
Hann segist telja að Guðmundur fái líklegast ekki nema fimm prósent atkvæða. „Það verður samt nokkrum prósentum of mikið,“ bætir hann við í færslu sinni á Facebook en hann segist ekki sjá neitt „sérstaklega göfugt við að rugludallur (eins og Guðmundur Franklín vissulega er) geti virkjað einhvern framboðsrétt.“
Stefán segist þó fagna því að kosningar verði í sumar og segir hann ástæðuna vera tvíþætta. „Í fyrsta lagi tel ég að forsetakosningar nú séu efnahagslega jákvæðar,“ segir Stefán. „Kosningar kosta kannski 400 milljónir, en renna svona 95% í launakostnað innanlands: til prentara, yfirsetufólks, kjörstjórna, húsvarða í grunnskólum… þetta er fáránlega skilvirk leið til að skapa samfélagslega virkni og koma smáfjárhæðum til almennings.“
„Í öðru lagi er gott að smyrja vélina. Ein af frumforsendum þess að lýðræðið í okkar samfélagi virki er sú að kosningar gangi stóráfallalaust fyrir sig,“ bætir hann við og segir hann það ekki vera grín að halda kosningar. Hann segir að óspennandi forsetakosningar þar sem sitjandi forseti vinnur stórsigur sé frábær æfing fyrir kerfið þar sem kjörstjórnir geta prufað nýjungar.
„Ef vel ætti að vera gætu sveitarstjórnir vítt og breitt um landið notað tækifærið fyrir hvers kyns íbúakosningar um aðskiljanlegustu mál sem varla væri verjandi að efna til einna og sér,“ segir Stefán að lokum. „Lengi lifi kosningar!“