Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson telur að Morgunblaðið hafi breytt fyrirsögn á vefmiðli sínum Mbl.is í þágu Sjálfstæðisflokksins. Hann gefur jafnframt til kynna að Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra hjá Mogganum, hafi breytt fyrirsögninni.
Fréttin sem um ræðir varðar ræðu Bjarna Benediktssonar á Alþingi í gær. Upprunalega fyrirsögnin var: Hlegið úr þingsal þegar Bjarni talaði um stjórnlyndi, en henni var síðan breytt í: „Sjálfstæðisflokkurinn mun áfram heita Sjálfstæðisflokkurinn“.
Jakob fjallar um málið í Facebook-hópnum Fjölmiðlanördar, en hann segir málið athyglisvert í samhengi við umræðu um frjálsa fjölmiðlun annars vegar og hins vegar gömlu flokksblöðin.
„Mogginn heldur uppi þeim fornu merkjunum sem brenglar umræðuna eilítið, fyrir svo náttúrlega utan fyrirferð ríkisins á fjölmiðlamarkaði.“ segir Jakob.
„Fyrri útgáfan var í tvo tíma á mbl og svo hefur einhver ónefndur (fyrsti stafurinn er Andrés) talið vert að gæta hagsmuna Flokksins. Og þá er kominn annar blær á þetta allt saman og þóknanlegri. Gaman að þessu, nema kannski fyrir þann sem skrifaði fyrstu útgáfuna.“ bætir hann við.
Andrés hefur síðan svarað Jakobi og þvetekur fyrir að hann hafi sjálfur breytt fyrirsögninni. Og þá fullyrðir hann að fyrirsögninni hafi verið breytt því fyrri útgáfan hafi ekki verið rétt.
„Það þurfti að breyta fyrirsögninni af því að sú fyrri var ekki rétt, flóknara var það nú ekki. Og nei, ég skrifaði hana ekki.“ segir Andrés.
Jakob hefur síðan svarað honum og segir: „Þetta er orðið að spennandi ráðgátu. Td hvernig er hin ranga fyrirsögn til komin?“