Tekist á um áfengislöggjöf: „Vef­verslun með á­fengi á Ís­landi er smá­sala með á­fengi á Ís­landi“

Tekist var á um gildandi á­fengis­lög­gjöf í Sprengi­sandi í dag. Eyjólfur Ár­manns­son, al­þingis­maður Flokks fólksins, hafnaði því að nein laga­leg ó­vissa væri uppi um gildandi á­stand eftir lok síðasta þing­tíma­bils. Bryn­dís Haralds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, sagði að að­stæður á á­fengis­markaði væru gjör­breyttar með auknum vin­sældum vef­verslana og að það væri hlut­verk lög­gjafans að bregðast við nýju markað­s­um­hverfi.

Hægt er að lesa alla greinina í Frétta­blaðinu.

„Vef­verslun með á­fengi á Ís­landi er smá­sala með á­fengi á Ís­landi,“ sagði Eyjólfur. „Það er alveg kristal­tært. Á­fengis­lög eru alveg skýr hvað það varðar að smá­sala með á­fengi er í höndum ríkisins. Þeir hafa einka­leyfi til smá­sölu á­fengis. Og það að halda að vef­verslun sé eitt­hvað öðru­vísi en önnur verslun er ekki rétt.“

„Netið er bara sam­skipta­vett­vangur til að panta vöru,“ hélt Eyjólfur á­fram. „Salan fer fram á þeim stað þar sem varan er af­hent. Ef er­lendir aðilar geta selt á­fengi á Ís­landi er ekki inn­lendir er það skýrt brot á EES-samningnum.“

Eyjólfur sakaði RÚV um að hafa miðlað „á­róðri“ síðan þing­tíma­bilinu lauk án þess að frum­varp um að heimila smá­sölu vef­verslana með á­fengi næði fram að ganga. Jón Gunnars­son dóms­mála­ráð­herra hefur gefið út að hann muni leggja fram sam­bæri­legt frum­varp í haust. Rekstrar­aðilar hafa haldið því fram að sem stendur sé net­verslun á­fengis á „gráu svæði“ og ekki liggi skýrt fyrir hvað megi og hvað ekki. Þessu hafnaði Eyjólfur al­farið.

„Það er engin laga­ó­vissa. Það á bara að fram­fylgja þessum lögum og á­kæru­valdinu ber skylda að sjá til þess að þeir sem brjóta gegn þeim sæti lög­mætum viður­lögum.“

Hægt er að lesa meira hér.

Fleiri fréttir