Karl Guðlaugsson tannlæknir er enginn aðdáandi papparöranna ef marka má stutta og skorinorða grein eftir hann sem birt er í Fréttablaðinu í dag.
Eins og flestum ætti að vera kunnugt er nú bannað að afhenda einnota plastvörur á borð við plaströr og einnota hnífapör. Bannið hefur lagst misjafnlega fyrir og sakna margir gömlu góðu plaströranna sem þykja töluvert sterkari og hentugri en papparörin.
Í grein sinni í Fréttablaðinu segir Karl:
„Það er eðli verkefnis að skila afurð. Ef notagildi afurðarinnar er lítið sem ekkert er afurðin gagnslaus. Í gerbreyttum heimi þar sem orkueiningar til framleiðslu eru mældar í kolefnisspori getur vitleysan orðið svo gegndarlaus að það er eins og heilinn hafi ekki verið notaður,“ segir hann og endar grein sína á þessum orðum:
„Það sér hver heilvita maður að notagildi papparöra í drykkjarföng er ekkert. Hver er þá orkusparnaðurinn? Ég vona innilega að vöruþróun næstu missera finni afurð sem leysir af hólmi plaströrin. En í Guðs bænum leyfið mér að nota mitt plaströr þar til lausnin er fundin!“