Tæknilausnir á tímum kórónaveirunnar gætu umbylt heilbrigðiskerfi í dreifbýli

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, segir tæknilausnir á tímum kórónaveirunnar vera jákvæða þróun og vonar hún að þetta haldist í framtíðinni. Bjarkey skrifar um fjarvinnslu, fjarfundi og fjarvinnu í grein sem birtist í gær á eyfirska fréttavefnum Vikudegi.

Hnitmiðaðri fundir á Alþingi

Bjarkey fagnar fjarfundum og segir það jákvæða breytingu, þá sérstaklega fyrir Alþingi.

„Minn vinnustaður, Alþingi, hefur ekki farið varhluta af því þar sem að stór hluti starfsins fer nú fram á internetinu í stað hefðbundinna funda. Ég tel þetta vera jákvæða þróun að mörgu leyti, fundirnir alla jafna styttri og hnitmiðaðri. Margir þeirra sem koma fyrir nefndir Alþingis af landsbyggðinni hafa lengi kallað eftir betri tæknilausnum til að spara kostnað við að ferðast til Reykjavíkur á einn fund og svo heim samdægurs,“ skrifar Bjarkey.

Umbylting á landsbyggðinni

Fjarfundir eru heillaspor fyrir landsbyggðirnar: „Í mörg ár þóttu fjarfundir og fjarvinna óyfirstíganleg hindrun í atvinnusköpun á landsbyggðinni. Mörgum þótti það óhugsandi að stofnanir gætu verið með dreifðar starfsstöðvar um landið. Þetta viðhorf hvarf á einni nóttu þegar allir þeir sem höfðu möguleika á voru skikkaðir til að vinna heima.“

Bjarkey er vongóð um framtíðina þrátt fyrir neikvæð áhrif kórónaveirufaraldursins. Fjarheilbrigðisþjónusta á Íslandi hefur tekið risavaxið stök úr því að vera langtímamarkmið í að vera veruleiki.

Bjarkey segist sannfærð um að fjarvinna þurfi ekki að vera flókin. Hún nefnir dæmi frá því að hún sat í bæjarstjórn þegar Ólafsfjörður og Siglufjörður sameinuðust í Fjallabyggð árið 2006: „Þá voru engin Héðinsfjarðargöng. Allir nefndarfundir fóru fram í gegnum fjarfundabúnað sem þó var engu líkur því sem við höfum úr að moða í dag en gekk þó afskaplega vel. Þá sannfærðist ég endanlega um að fjarvinna þarf ekki að vera svo flókin.“

Hún hefur trú á að tæknin muni auka fjölbreytileika heilbrigðisþjónustu í dreifbýli. Háhraðatenging um allt land eykur möguleika alls staðar að mati Bjarkeyjar.

„Ímyndum okkur hversu fljótlegra það er að fara í 15 mínútna heimsókn til læknis í gegnum snjalltæki í stað þess að fara á bílnum eða í strætó. Þessi tími er fljótur að safnast saman, sérstaklega þegar fólk býr í dreifbýli og þarf að ferðast um langan veg til að nálgast heilbrigðisþjónustu, sem á að vera aðgengileg fyrir alla.“

Fleiri fréttir