Íslenska Eurovisionframlagið Með hækkandi sól í flutningi Systra, komst áfram í fyrri undanúrslitum Eurovision-keppninnar í kvöld.
Löndin sem komust áfram, auk Íslands, voru Sviss, Grikkland, Moldavía, Armenía, Litháen, Portúgal. Noregur, Úkraína og Holland.
Systraþríeykið tóku lagið í undanriðli ásamt Albönum, Lettum, Litháum, Svisslendingum, Slóvenum, Úkraínumönnum , Búlgörum, Hollendingum, Moldavíumönnum, Portúgölum, Króötum, Dönum, Austurríkismönnum, Grikkjum, Norðmönnum og Armenum.
Skömmu fyrir keppni höfðu Systurnar hafa fært sig upp í veðbönkum, eftir síðasta rennsli fyrir keppni og dómararennsli í gær.