Svava tjáir sig um áhirf ofbeldis á jólin: „Rifja upp gleði­stundir sem ekki urðu“

Svava Guðrún Helgadóttir, ráð­gjafi í Bjarkar­hlíð og meistara­nemi í heil­brigðis­vísindum með á­herslu á sál­ræn á­föll og of­beldi, fjallar um ofbeldi og áhrif þess í grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag.

Þar snertir hún meðal annars á áhrifum ofbeldis á jólin.

„Nú þegar há­tíð gengur í garð er eðli­legt að upp­lifa sorg og hryggð. Syrgja há­tíðis­daga sem litast hafa af gjörðum gerandans. Rifja upp gleði­stundir sem ekki urðu og jól þar sem erfitt var að mæta vonum og væntingum barnanna sökum of­beldis og ó­mann­legs á­lags.“ skrifar Svava sem segir að þá sé mikilvægt að sýna sjálfum sér samkennd.

„Of­beldi er sam­fé­lags­mein sem hvergi á að þrífast og til þess að stemma stigu við því verðum við að taka höndum saman og berjast gegn því. Við verðum að berjast gegn þögguninni og viður­kenna reynslu og til­finningar þol­enda, þar er sorgin stór og viða­mikill þáttur. Ferli sem tekur tíma en leiðir vonandi af sér sátt.“ segir Svava sem endar grein sína á þessum orðum:

„Allir hafa rétt á sinni sorg. Hún er mikil­vægur partur af bata hvers manns og að­lögun að nýju lífi. Engin leið er úr sorginni nema í gegnum hana.“

Hægt er að lesa grein Svövu í heild sinni hér.

Fleiri fréttir