Svanur Guðmundsson, sjávarútvegsfræðingur og framkvæmdastjóri Blá hagkerfisins, skrifaði um sjómenn í innsendri grein áVísi í dag.
„Árið 2021 er fimmta árið í röð án þess að það verði banaslys á sjó hér við Ísland. Því ber að fagna og við Íslendingar getum sannarlega glaðst yfir því hve mjög viðhorf til öryggismála hafa batnað á síðustu áratugum. Fyrir daga kvótakerfisins og í kjölfar skuttogaravæðingar fórust allt að 11 manns á sjó á hverju ári og allt upp í 65 manns árið 1973,“ skrifar Svanur.
„Tímabilið fyrir daga aflamarksins einkenndist af ofurkappi við að ná sem mestum afla á sem stystum tíma og kostaði það mörg mannslíf,“ bætir Svanur við sem síðan hrósar íslenskum sjómönnum hástert.
Hann vill að þjóðin minnist þeirra sem hafa sótt verðmæti úr sjónum fyrir land og þjóð þar sem hann efast um að núverandi kynslóð viti af þeirra fórnum.
„Íslenski sjómenn eru útverðir þessa lands og hafa skapað mikil verðmæti fyrir okkar þjóð. Þeim er sómi sýndur með minnisvörðum víða um land og í kirkjugörðum má finna legsteina margra sjómanna sem drukknað hafa við Ísland. Margir hafa aldrei komist þangað. En þekkir núverandi kynslóð þessa sögu? Minn draumur er að sjá veglegt minnismerki í höfuðborginni sem minnir á þessa sögu. Verkið myndi vísa út til sjávar, til þeirra sem eru þar enn og þeirra sem fundust og komust í vígða mold,“ skrifar Svanur.
„Líkt verk getum við sem eftir lifum notað til að votta þeim virðingu okkar og um leið minnt gesti sem hingað koma á hvað það er að vera Íslendingur og hvaða fórnir fyrri kynslóðir hafa fært,“ skrifar Svanur að lokum.