Svan­hildur Hólm um lífið eftir ADHD-greiningu: „Svona at­vikum hefur sem betur fer fækkað“

Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs, segir Stytting bið­lista í greiningu yrði örugg­lega þjóð­hags­lega hag­kvæm að­gerð, enda er ó­greint ADHD-fólk van­nýtt auð­lind.

Hún segir sjálf að líf sitt hefur batnað til muna eftir greiningu.

„Einn morguninn í síðustu viku fór ég í apó­tek að sækja lyf sem ég tek dag­lega. Þar hitti ég vin for­eldra minna og spjallaði við hann á meðan ég beið eftir af­greiðslu. Svo fór ég út í bíl með panodil, otri­vin og mildi­son fyrir of­næmi dóttur minnar, en ekki lyfin sem voru til­gangur ferðarinnar,“ skrifar Svan­hildur í grein í Við­skipta­blaðinu.

„Svona at­vikum hefur sem betur fer fækkað eftir að ég fékk ADHD-greiningu. Áður var ég iðu­lega að hugsa tólf hluti í einu og var mjög utan við mig. Ég get svo sem enn verið utan við mig, en það er langt síðan ég hellti síðast yfir mig kaffi við það að líta á úrið. Ég hef heldur ekki týnt bílnum svo heitið geti síðan ég fór á lyf og ekki bakkað á neitt á bíla­stæðinu heima hjá mér. Það gerðist nokkrum sinnum af því að ég gleymdi um leið og ég settist inn í bílinn að það væri eitt­hvað fyrir aftan mig. (Maðurinn sem fann upp bakk­mynda­vélina ætti samt að fá nóbelinn.)“ skrifar Svan­hildur.

„Þrátt fyrir allt taldist ég vel fúnkerandi ADHD-manneskja. Með alls­konar bjarg­ráðum eins og minnis­listum, stífum dag­bókar­skráningum og blessun ofur­ein­beitingar sem stundum fylgir ADHD, hefur mér tekist að gera ýmis­legt. Það hefur bara krafist mikils tíma og orku og mér skilst að þau batterí endist ekki endi­lega ævina á enda.“

„Það getur alveg verið fyndið að vera eins og skil­getið af­kvæmi Viggós við­utan og prófessors Vand­ráðs, en það er alls ekki fyndið að þróa með sér kvíða, vera lík­legri til að lenda í ó­höppum og slysum, strögla eða hrökklast úr námi og vera oft í brekku í saman­burði við sam­ferða­mennina. Stytting bið­lista í greiningu yrði örugg­lega þjóð­hags­lega hag­kvæm að­gerð, enda er ó­greint ADHD-fólk van­nýtt auð­lind,“ skrifar Svan­hildur að lokum.

Fleiri fréttir