Svandís sagði frá því hvernig Þórólfur aprílgabbaði hana

Svandís Svavarsdóttir landbúnaðarráðherra sló á létta strengi í erindi sínu á málþingi landlæknis til heiðurs Þórólfi Guðnasyni, fyrrum sóttvarnalækni, sem fór fram í föstudag í tilefni starfsloka hans. Hún greindi til að mynda frá aprílgabbi Þórólfs.

Það átti sér stað á meðan hún var enn heilbrigðisráðherra, en eitt kvöldið sendi hann á hana að það væru hundrað smitaðir, og að öll þeirra væru utan sóttkvíar.

„Ég hefði andað í poka hefði mér dottið það í hug,“ sagði Svandís, en skömmu síðar sendi Þórólfur á hana „1. apríl“.

„Svona var alvarleikinn í stjórn þjóðarinnar á þessum erfiðu tímum,“ bætir hún við.

Fleiri fréttir