Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir það ekki úr takt við hennar pólitík að leita til einkaaðila til að leysa vanda gjörgæsludeilda. Hún greinir frá því í viðtali á Hringbraut að nú vinni ráðuneyti hennar með einkaaðilum til að manna vaktir á gjörgæsludeildir til að bæta mönnun og til að bæta við fólki sem er ekki þreytt.
„Þetta eru aðilar sem eru að reka heilbrigðisþjónustu úti í bæ en hafa tekið því vel þegar við höfum leitað eftir því að þau geti ljáð okkur lið, eða lagt okkur lið öllu heldur. Bæði læknar og hjúkrunarfræðingar og fjölbreyttara starfsfólk, sem er að hjálpa okkur að manna þessar deildir sem að mæðir mest á,“ segir Svandís.
Spurð hvort það sé ekki í takt við hennar pólitík sem hefur ávallt talað gegn einkavæðingu heilbrigðiskerfisins segir Svandís að það sé í takt við hennar pólitík að leysa málin.
„Ef þetta er leiðin til þess, þá geri ég það,“ segir Svandís og að það sé hluti af Covid-faraldrinum að allir snúi bökum saman, bæði þau sem starfa innan opinbera kerfisins og þau sem starfa í einkakerfinu.
Nánar í kvöld í Fréttavaktinni klukkan 18.30.