Stuðnings­yfir­lýsingum rignir yfir Eddu Sif eftir við­talið í Vikunni: „Um­ræðan um þetta mál á sínum tíma var galin“

Fjöl­margar konur hafa stutt við bakið á í­þrótta­frétta­konunni Eddu Sif Páls­dóttur eftir hún greindi frá al­var­legri líkams­á­rás sem hún varð fyrir árið 2012 inn á klósetti á Grand Hótel í Vikunni.

Þetta var í fyrsta skipti sem Edda ræddi á­rásina opin­ber­lega. Edda Sif kærði fjöl­miðla­manninn Hjört Hjartarsson árið 2012, en málið fór ekki fyrir dóm þar sem þau náðu sam­komu­lagi. Á­rásin átti sér stað eftir kjörið á í­þrótta­manni ársins í janúar 2012 þar sem þau bæði voru að vinna. Edda Sif segir að mörg vitni hafi orðið að hluta at­burða­rásarinnar, annars hefði hún mögu­lega aldrei sagt frá því sem gerðist.

Edda sagði í viðtalinu að atburðarrásin sæti enn í henni og hún hafi þurft að leita til Bjarkarhlíðar sex árum eftir atvikið. „Ég tikkaði í öll boxin,“ segir Edda. „Ég lét þetta yfir mig ganga án þess að segja mína hlið og hef gert síðan en það gengur kannski ekki upp að þegja bara og ætlast á sama tíma til að fólk viti og skilji. Og ég væri örugglega ekki að tala um þetta núna nema af því að það er fullt af fólki búið að stíga fram með sína reynslu og ég vona að tíðarandinn sé þess vegna aðeins annar en fyrir áratug,“ segir Edda Sif í Vikunni.

Þór­hildur Þor­kels­dóttir fyrrum blaða­maður sendir Eddu Sif stuðnings­kveðjur á Twitter. „Ég er svo stolt af vin­konu minni sem er mesti nagli sem ég þekki. Um­ræðan um þetta mál á sínum tíma var galin og náði aldrei utan um þetta ó­geðs­lega og lífs­hættu­lega of­beldi sem hún varð fyrir - og þetta var hvorki í fyrsta né síðasta skipti sem hann beitti því,“ skrifar Þór­hildur.

Gyða Guð­munds­dóttir tekur í sama streng og segir: „Elsku hug­rakka, sterka, klára og góða Edda Sif. Ég stend með þér og veit að við erum ó­tal­mörg em trúum þér og styðjum þig. Takk fyrir að vera ná­kvæm­lega eins og þú ert.

Í­þrótta­frétta­konan og Gettu Betur spyrilinn Kristjana Arnars deilir færslu Gyðu og segir: „Tek undir hvert orð.“

Fleiri fréttir