Hönnuðurinn Jón Kári Eldon deildi skemmtilegu myndbandi af landsleik Íslands og Albaníu þar sem óperusöngvarinn Kristján Jóhannsson stal senunni af fótboltastjörnunum.
Þegar þjóðsöngur Íslands, Lofsöngur var spilaður fyrir leikinn sungu gestir á Laugardalsvelli saman, en enginn betur en Kristján. Það mætti segja að áhorfendur fengu mikið meira fyrir peninginn.
Jón Kári deildi myndbandi af atvikinu og skrifaði „Það er bara takk.“
Myndbandið í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.
Það er bara takk 🫡🫡🫡 pic.twitter.com/bWYRCumhlZ
— Jón Kári Eldon (@jonkarieldon) June 6, 2022