Stolt af því að hafa skitið á sig í stjórnmálaheimspeki Hannesar

Hannes Hólmstein Gissurarson gefur lítið fyrir orð Semu Erlu Serdar, formanns hjálparsamtakanna Solaris, um að íslenskt samfélag sé fjölmenningarsamfélagið.

„Hefur átt sér stað nýtt Tyrkjarán, nema hvað nú er ekki rænt fólki til að selja á erlendum mörkuðum eins og 1627, heldur menningu okkar, tungu, landi, tilvist?“ velti Hannes fyrir sér í færslu sem hann birti á Facebook. Tilefnið var viðtal við Semu þar sem hún brást við hræðsluáróðri ný­nasista­ sem hafa birst á stoppi­stöðvum Strætó.

„Þetta hefur verið að færast í aukana síðast­liðnu ár og hefur verið normalí­serað. Sem er ó­trú­lega sorg­legt því ís­lenskt sam­fé­lag er fjöl­menningar­sam­fé­lag og því verður ekki haggað,“ sagði Sema í samtali við Fréttablaðið.

Þessi orð Semu fóru greinilega fyrir brjóstið á Hannesi sem spurði hvenær ákveðið hafi verið að þjóðmenning Íslendinga þokaði fyrir fjölmenningu.

Hannes er einnig fyrrverandi kennari Semu í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og gaf henni víst lága einkunn í áfanga sínum um stjórnmálaheimspeki, eða 5,5 í lokaeinkunn. Sema greinir sjálf frá þessu í færslu á Facebook og segist aldrei hafa verið jafn stolt af því að hafa skitið á sig í stjórnmálaheimspeki Hannesar.

„Þessi ógeðfelldu ummæli hans um sinn fyrrum nemanda endurspegla nefnilega fátt annað en þjóðernisrembing hans og kvenfyrirlitningu, útlendingaandúð, íslamófóbíu og menningarlegan rasisma. Hann býr yfir óhugnanlegri lífssýn og þessi forkastanlegu ummæli hans eru sorgleg, niðurlægjandi og til ævarandi skammar - ekki fyrir mig heldur einungis fyrir hann sjálfan,“ skrifar Sema.

„Það væri óskandi að háskólaprófessorinn myndi eyða orku sinni í að berjast gegn uppgangi nýnasista í samfélaginu "hans" - sem þetta viðtal við mig fjallaði um - í stað þess að dreifa hræðsluáróðri sem elur á fordómum, jaðarsetningu og mismunun í garð minnihlutahópa í samfélaginu - hræðsluáróðri sem nýnasistarnir taka einmitt fagnandi.“

Fleiri fréttir